Ljóshærða dívan

Hér sé stuð !!

17.02.2009 13:48:14 / harpara

við erum 2 ára í dag :)



Halló halló í dag eigum við parið 2 ára sambandsafmæli, alltaf gaman að eiga afmæli sko :d
Síðustu 2 ár hafa verið bæði yndisleg og erfið og við höfum fengið að ganga í gegnum ansi margt á ekki lengri tíma 8| En við ættum þá að vera ansi samrýmd og sterk saman og ég gæti ekki hugsað mér að fara í gegnum neitt nema með minn yndislega mann mér við hlið. Hann er alveg mín stoð og stytta og yndislegasti maður sem ég veit um. Hann hefur svo stórt og fallegt hjarta, er vinur vina sinna og er einstaklega bóngóður :d Að mínu mati er ekki hægt að finna fallegri einstakling utan sem innan, en ég er kannski pínu hlutdræg þar sko;).
Takk ástin mín fyrir árin okkar tvö, ég hlakka til eyða þeim mörgum í viðbót með þér. Elska þig meira en allt :d Þúsund kossar og knús
Bæjó Dívan

» 1 hafa sagt sína skoðun

24.11.2008 16:55:58 / harpara

Ó þú yndislega prófatíð !!

Játs þá er komið að því enn og aftur, það er komið að prófu. :s Þá gengur í garð tími druslulegra fata, hárgreiðslu út í loftið, stirðleika í líkama og prentsvörtu á nefi. Get ekki sagt beint að ég hlakki til, en hins vegar ef við setjum Pollýönu á þetta þá er það þannig að þegar þessi blessuðu próf, sem eru 5 bókleg og 1 verklegt, eru búin þá eru bara 12 dagar í jólin og ég komin í jólafrí :d svo kannski er þetta ekki alslæmt, en drullu erfitt get víst ekki neitað því 8|
Núna situr maður og prentar og prentar og skipuleggur hvernig maður ætlar að fara að því að gera þetta allt saman :$ svo tekur við endalaus lestur, þannig að það er alsendist óvíst að nokkuð blogg komi frá mér næstu 2 -3 vikurnar ;) Þannig að ég gerðist bara sniðug og skellti þessum fáu orðum niður svo það sé ekki hægt að skamma mig fyrir að blogga ekki.
Ég hef fengið góð og falleg viðbrögð við blogginu mínu hér á undan og mikið af heimsóknum hérna á síðuna (takk innilega fyrir það ) , en það eru greinilega ansi margir feimnir og þora ekki að kvitta hvorki fyrir neðan eða í gestabókina ;) vildi bara láta ykkur vita, ég lofa að bíta ekki ef þið kvittið það væri meira að segja rosalega gaman að fá að sjá hverjir það eru sem kíkja hérna við ;)
En þangað til næst
bæjó prófkvíðalestrar Dívan 8|




» 8 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 15:30:10 / harpara

6.nóvember 2007


    Aðfaranótt þessa dags fyrir nákvæmlega ári síðan fékk ég símhringingu kl 01:20 og í símanum var Kobbi. Hann sagði „þú ættir að koma upp á sjúkrahús hún frænka þín er að kveðja okkur, Herdís er að deyja“ Ég einhvernvegin heyri þessi orð stundum ennþá hljóma í höfðinu á mér og mér finnst þau reyndar ennþá svo óraunveruleg líka.  Og á einu augabragði hrundi veröldin fyrir mér. Kletturinn minn og stoðin mín var að yfirgefa þennan heim og ég gat ekkert gert.

    En samt sem áður var það ekki flúið, ég fór á sjúkrahúsið og kvaddi mína elskulegu frænku í hinsta sinn og horfði á líf hennar fjara út langt fyrir réttan tíma og ég gruna okkur báðar um að hafa hvorugar verið tilbúnar fyrir þessa stund, ég ekki að hún færi frá okkur og hún ekki tilbúin að fara.

    Hún var svo lífsglöð, kát og falleg manneskja og ég á stundum svo erfitt með að sætta mig við að hún sé farin en svona er lífið við fáum þessu ekki breytt þó við séum ekki sátt og verðum bara að læra að lifa með því. Í dag er ég búin að kveikja á kerti og ég þakka fyrir það að hafa átt hana að þann tíma sem hún lifði og ég er svo innilega þakklát og get sennilega aldrei full þakkað fyrir að eiga minn yndislega mann að hann hefur alveg verið mín stoð og stytta og ég gæti ekki hugsað mér betri mann. Eins er ég svo þakklát fyrir mína yndislegu fjölskyldu og mína yndislegu vini, það hafa allir staðið við mig eins og klettur og það er gott að vita til þess að maður á svona góðan hóp í kringum sig.

    Gangur lífsins sannaðist alveg þarna þessa nótt því að morguninn eftir fékk ég skilaboð frá Láru minni um að litla prinsessan þeirra væri komin í heiminn. Og eins og Lára mín sagði svo fallega, þegar engillinn minn var að fæðast þá deyr engillinn þinn, alveg hverju orði sannara. Innilega til hamingju með daginn Rakel mín, Lára og Geiri, njótið hans vel.

Elsku Herdís mín, njóttu þín hvar sem þú ert og ég hlakka til að sjá þig síðar. Sakna þín meir en orð fá lýst.

Þangað til næst

Bæjó Dívan


» 7 hafa sagt sína skoðun

28.10.2008 00:50:44 / harpara

Tröllafell!!

Stjórnmálaþurs
Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.
Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.

Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.
Hmm veit nú ekki hvort ég sé sammála þessu en endilega prufið þetta og sjáið hvernig þurs eða tröll þið eruð hehehe :lol:
http://www.stilbrot.com/trollafell/konnun/ - hér kemur allur leyndardómurinn í ljós :d
Þangað til næst
Bæjó þursa Dívan 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

14.10.2008 16:42:46 / harpara

klukk!!

Já mín skelfilega systir þurfti endilega að klukka mig og svo er hún búin að skamma mig endalaust fyrir að vera ekki búin að svara þessu klukki svo það er eins gott að setja það hérna inn 8|

Klukk

Fjögur störf sem ég hef unnið við um ævina:
1. Saumastofan Borg
2. Strýta, í rækjuvinnslu
3. Sambýli fyrir fatlaða
4. Brauðgerð Kristjáns

Fjórir staðir sem ég hef búið á um ævina:
1. Akureyri
2. Hrísar
3. Hjallalundur
4. Borgarhlíð

Fjórar bíómyndir sem ég held upp á:
1. Bridget Jones 1 og 2
2. Never been kissed
3. Wild hogs
4. Reykjavík Rotterdam

Fjórir sjónvarpsþættir í uppáhaldi:
1. ER
2. House
3. Grays anatomi
4. Svartir englar og Dagvaktin

Fjórar bækur sem ég hef lesið oftar en einu sinni:
1. Tár bros og takkaskór (hérna einu sinni)
2. Margar barnabækur fyrir dóttur mína
3. Dagbók hversvegna ég
4. Dagbók í hreinskilni sagt

Matur sem er í uppáhaldi:
1. Jólasteikin hennar mömmu
2. Jólasteikin hans Baldurs
3. Hangikjöt
4. Kjöt í karrý

Fjórar síður sem ég heimsæki daglega (fyrir utan bloggsíður):
1. Vef stefanía (skólasíðan)
2. Mbl.is
3. Blakbourd (solaria)
4. facebook

Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
1. Danmörk
2. London
3. Reykjavík/Grindavík
4. Illugastaðir

Fjórir staðir sem ég myndi vilja vera á núna:
1. London
2. Spánn
3. Inni í rúmi sofandi
4. Á Hvammstanga

Fjórir bloggarar sem ég klukka:
1. Þú
2. Þú
3. þú
4. Og þú 8)
Jæja Ragnheiður hér hefurðu það, segðu svo að ég sé ekki dugleg ha ha ha
Þangað til næst bæjó Dívan 8)



» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 15:10:54 / harpara

Bónorð í London baby :)

Já það var bara geðveikt í London skal ég segja ykkur:d við erum gegnin upp að eyrnasnepplum en það er í góðu lagi, það var sko þess virði.
Á fimmtudagskvöldið þegar við vorum komin út og búin að koma okkur fyrir á herberginu og svona þá var fyrsta verk að fara á Queen show sem var svona líka bara geggjað, maður var með gæsahúð alveg niður á tær þetta var svo flott og alveg brjálæðislega flott sungið 8| :d
Á föstudeginum var svo lagt snemma af stað og það fór hópur saman niður í westminester og sáum Big Ben og svo niður að Thamesánni og í London eye, það var ekkert smá flott að sjá allt þar, maður sá alveg langt yfir en auðvitað ekki yfir alla London það er ekkert smá stór borg. Síðan gegnum við upp að konungshöllinni Buckingham Palace og þar í kring og í gegnum garð sem heitir St. James´s park. Svo var farið í lest og farið á Oxford street og verslað smá, það var reyndar ekki verslað neitt mikið því það er bara ekkert ódýrara að versla þarn úti en hérna heima á klakanum.:$
Á laugardaginn fór svo stór hluti af hópnum á fótboltaleik en við skötuhjúin erum nú ekki fyrri fótbolta :s svo við fórum bara tvö niður í westminester aftur og skoðuðum okkur betur um þar, fórum að hesthúsum drottningar og sáum þar skipti á vöruðum sem voru á hestum og svo yfirferð á vörðunum, þetta er ekkert smá prógramm hjá þessu liði maður minn :o Jæja svo fórum við og löbbuðum niður með Thames ánni og sáum þar ein mótmæli, við sáum reyndar 3 þennan eina dag. Þegar við vorum svo að labba til baka meðfram ánni, þá kom minn yndislegi maður mér á óvart og bað mín þarna niður við ánna, bara sætastur og ég sagði auðvitað :haha: svo nú erum við barasta trúlofuð og allt :d (persónulega finnst mér þetta besti hluti ferðarinnar hehe :lol:) en jæja svo fórum við upp að Westminester Abbey og Baldur var ekki Westminester crabbey eins og hann var búinn að ákveða að vera hehehehe nú enda var ég líka nýbúin að segja "já" við hann hehehe :lol:
Um kvöldið var svo árshátíð Búts og það fóru allir saman út að borða á fínum veitingarstað, þriggja rétta máltíð og mér fannst súkkulaðikakan í lokin standa upp úr, sjæks hvað hún var góð 8| og að lokum fórum við svo heim á hótel með hjólavagni, sem var bara ógeðslega gaman og fyndið, þeir fóru í kapp og maður var eins og það væri hevy rok í gangi, dúið fór í klessu og allt hehehe:lol:
Á sunnudeginum fórum við svo í  vaxmyndasafnið Madame Tussauds, það var nú bara lygi líkast hvað þessar dúkkur voru raunverulegar og ekkert smá gaman að skoða þetta allt saman :d og þegar við vorum búin þar, þá fórum við á Abbey Road þar sem Bítlarnir voru með stúdíó og heilsuðum upp á þá, eða allavegana húsið og Baldur tók smá Bítlalabb yfir götuna ein og utan á einu plötualbúminu þeirra :haha:
Svo tók bara við bið eftir að fara út á völl og svo heim, en það varð að vísu töf og við sátum í vélinni í klukkutíma áður en hún fór í loftið :s Og svo voru það alveg kúguppgefnir Íslendingar sem komu á Keflavíkurvöll um miðnætti og beint upp á hótel að sofa. Svo var bara heimferð á mánudaginn og beint heim að kvíla sig ;)
En jæja þetta er engin smá ritgerð, svo þangað til næst
Bæjó nýtrúlofaða London Dívan :haha:


» 12 hafa sagt sína skoðun

11.09.2008 00:28:57 / harpara

11. september


When I think of angels I think of you
And your flaming red hair and the things that you do
I heard you had left no it couldn’t be true
When I think of angels, I think of you

God speak to you angel, wherever you go
Tough you had left I want you to know
My hearts full of sorrow
I won’t let it show
I see you again when it’s my time to go

When I think of angels I think of you
And your flaming red hair and the things that you do
I heard you had left no it couldn’t be true
When I think of angels I think of you

When I think of angels I think of you



    Í dag hefði hún Herdís mín orðið 39 ára og mér fannst vel við hæfi að setja þennan texta inn því mér verður svo ofsalega oft hugsað til hennar og sakna hennar svo sárt. Þessi fallega persóna fór allt of fljótt í burtu en ég veit að hún er í góðum höndum þar sem hún er.

    Það að missa ástvin svona snögglega minnir okkur á að við eigum að njóta lífsins og segja þeim sem okkur er annt um oft hversu mikils virði þeir eru okkur.

Í anda afmælisbarnsins skulum við njóta þess að vera til, vera góð hvert við annað og skemmta okkur ;)

    Elsku Herdís mín, textinn segir það sem segja þarf við munum hittast aftur seinna :)

Þangað til næst

bæjó Dívan



» 4 hafa sagt sína skoðun

20.08.2008 19:37:42 / harpara

Loksins, loksins !!

Jæja sælt veri fólkið, það er komið að því kella er loksins að blogga :):!::!:
Nú er bara að koma haust og sumarið rétt að byrja 8|
Í byrjun júní fórum víð í hjólaferð með Gunna og Hrafnhildi, fórum á austfirðina og hjóluðum litla 1200 km. Við settum upp bækistöðvar á Egilsstöðum og hjóluðum svo alla firðina á laugardeginum og á sunnudeginum hjóluðum við svo á Borgarfjörð eystri og Seyðisfjörð áður en við fórum heim. Rosalega skemmtileg ferð :d
Í lok júní fékk kella svo mótorhjólaprófið, já þú last rétt ég er komin með mótorhjólapróf :haha: og þar með gat ég, ja kannski ekki sagt upp hnakkaskrautsstarfinu en allavegana minnkað það :d svo þá tók við tími æfinga og að ná upp smá færni, ekki orðin mikil hetja ennþá en það kemur :haha: Við höfum reyndar ekki hjólað mjög mikið í sumar, alltaf nóg að gera á bænum sko 8|
Júlí fór svo mikið í ættarmót, það voru bara heil 2 og það helgi eftir helgi... Annað var bara svona einn dagur á Hjalteyri og hitt var heil helgi í Svarfaðardalnum, rosa gleði og stuð 8)
Eins og ég skrifaði þarna einhvern tímann þá var ég að vinna á Hlíð í sumar og hætti þar núna 15.ágúst og þá er bara að undirbúa sig fyrir skólann sem er bara handan við hornið og byrjar af fullum krafti á mánudaginn 25. ágúst 8|
Jæja ég held að ég hafi nú unnið alveg stórafrek með þessu bloggi og segi því bara þangað til næst
bæjó Dívan 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 22:16:05 / harpara

Ammli :)

Já sælt veri fólkið :d Í dag á hann Baldur minn afmæli og er hann 25 ára alveg eins og í fyrra hehehe :lol: Innilega til hamingju með daginn ástin mín, þú ert langbestur. 
                                        

                           Með þér
Sérðu ekki við fæddumst til að standa hlið við hlið
og halda út á veginn saman og líta aldrei við.
Með þér vil ég verða gömul og ganga lífsins veg
með þér er líf mitt ríkara - með þér er ég bara ég.


Menn segja ég sé breytt og syngi um börnin og þig
ég syng um það sem skiptir máli aðeins fyrir mig.
Eitt mátt þú vita - ég elska þig meira en lífið sjálft
ég trúi án þín mitt líf væri hvorki heilt né hálft


Með þér er vorið yndislegt
og sumarið dýrðin ein.
Með þér er haustið göngutúr
og ævintýri undir stein.
Með þér er veturinn kertaljós
koss og stök rós.


Þetta ljóð finnst mér alveg passa við, elska þig svo mikið, kossar og knús
Þangað til næst
Bæjó Dívan

» 5 hafa sagt sína skoðun

01.06.2008 19:51:03 / harpara

komið sumar :)

Já sæl nú, það er orðið svolítið síðan að prófin voru búin og gamla náði þeim öllum með tölu, auðvitað með tölum 8) það var frá 5 til 7 og ég er bara sátt með það. Það voru þarna 2 próf sem ég var nú ekki viss um að hafa náð en náði samt, sko kéllu bara klár og allt :d
Nú er ég farin að vinna á Hlíð og það er bara svona líka fínt og skemmtilegt og alveg rosalega skemmtileg tilbreyting að vera búin að vinna kl 16 alla daga og eiga frí um helgar, það hefur ekki skeð í svona sirkabát 7 ár úfff :$
Svo þann 25.maí varð Freydís Ósk mín 11 ára, hvorki meira né minna, og manni finnst maður ekki eldast neitt og svo fær maður þetta bara eins og blauta tusku í trínið. Það var auðvitað haldin afmælisveisla og daman var alveg alsæl með það, fékk fullt af gjöfum og gestum.
Svo þann 29.maí þá eignuðust Kibba og Jobbi lítinn herramann sem var 14 merkur og 54 cm. Og ég var að skoða hann áðan, bara sætur sko kling kling, hohhh hvað var þetta, ekki ég sko hmm ;)
Við höfum nú að vísu ekki getað hjólað voðalega mikið undanfarið, en fórum á Egilsstaði um daginn rosalega gaman og svo er fyrirhuguð einhver góð ferð næstuhelgi, þá verður sko tekið á því, hugmyndin er jafnvel að skella sér bara hringinn í kringum eyjuna, en samt landleiðina sko hehehe :lol: sjæks hvað ég er hrottalega fyndin :d
En well ég er svo veðurtept í höfðinu núna, veit ekki hvað ég á að skrifa meira svo þangað til næst
Bæjó gleði Dívan 8)

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 21:33:42 / harpara

Jeij prófin búin :)

Já maður minn, nú eru prófin loksins búin, kláraði síðasta prófið á föstudaginn bara ljúft skal ég segja ykkur. Ég er líka búin að fá út úr tveimur prófum, ég fékk 7 í tölfræði, og 5 í líffærafræði, ég veit að það ekki hátt en ég er alsæl því þegar ég kom heim úr því prófi þá var ég viss um að ég hefði fallið því mér gekk svo illa :$ en nei gamla slefaði þetta með 5 og bara ánægð með það :) Og svo fékk ég 8,5 fyrir ritgerðina mína, bara sæl með það líka:haha:
Próflokadjammið mitt var svo þannig að við Hrafnhildur fórum út í bílskúr og ákváðum að gera eins og karlmennirnir, drekka bjór og þrífa hjólin okkar og við stóðum okkur bara mjög vel í því þó ég segi sjálf frá, sko bæði í að þrífa hjólin og drekka bjórinn :lol:
Um helgina var svo aðalega hjólað, á laugardaginn, sunnudaginn og á mánudaginn var svo heljar ferð. Þá fórum við héðan kl 11 ásamt 18 hjólum og ferðinni var heitið á Egilsstaði, og auðvitað fórum við þangað, fengum okkur hamborgara og svo aftur heim 8) Við Baldur héldum svo áfram að hjóla til kl 22:30 um kvöldið 8). Enda frekar þreytt í dag bæði tvö 8|
Ég hringdi samt í ökukennara í dag og er að byrja í mótorhjólaprófinu, byrja á að taka bóklega dótið á netinu og svo bóklega prófið. Svo þegar það er búið þá eru það ökutímarnir á eftir því, bara spennandi sko. Og þá get ég gert meira en að þrífa hana Magneu mína hehe:haha:
Svo næsta mánudag byrja ég að vinna á Hlíð frá 8 - 16 alla virka daga :d
En jæja þetta ætti að vera nóg í bili, þangað til næsta
bæjó Dívan 8)

» 4 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 09:42:54 / harpara

Allir að skamma mig :p

Jæja góðan daginn, ég ákvað að setja hér inn nýtt blogg því það er alltaf verið að skamma mig hvað það er langt síðan ég bloggaði. Ég meina finnst ykkur það skrítið, sjáiði ekki hvað það er flott mynd við hitt bloggið ha, ha, ha, :lol:
Well það er svo sem kannski ekki mikið að frétta þannig, eða jú víst, ég er búin að fara í tveggja vikna verknám á Hlíð - deildina Víðihlíð, og það gekk líka svona brilliant vel, ég fékk að taka blóð, gefa lyf og alveg fullt af skemmtilegu ;) Og er svo auðvitað rosalega ánægð með umsögnina sem ég fékk af deildinni, ég fékk alveg rosalega góða umsögn og svo góða að þær vildu fá mig í vinnu í sumar og voru hreinlega tilbúnar að pússla í kringum mig. Þetta var ekki slæmt fyrir egóið skal ég segja ykkur gott fólk :haha:
Ég sem sagt er þá líka komin með vinnu þar í sumar, frá 8 - 16 virka daga og fæ að vera í raðhúsunum frá 8 - 13 og inni á deild frá 13 - 16. Í raðhúsunum þarf ég að vera rosalega dugleg og vinna sjálfstætt því þar er ég eini starfsmaðurinn 8). Þetta verður  rosalega spennandi.8)
Nú svo styttist alveg óðfluga í prófin en ég get ekki sagt að ég hlakki  sérstaklega til  að fara í þau, nei við getum frekar talað um verulegan kvíða bara hérna á kantinum. Það eru 5 próf á dagskránni og ég tek síðasta prófið 9.maí :$ Svo það verður lítið annað gert næstu daga en að læra, vildi svo miklu frekar vera að fara í mótorhjólaprófið heldur en þessi próf, en það verður sko framkvæmt strax eftir prófin.
Jæja svo er veðrið líka farið að skána og við erum búin að fara nokkrar ferðir á hjólinu, bara gaman eins og alltaf :d
Jæja mér dettur ekki neitt meira í hug í bili, svo þangað til næst
Bæjó prófkvíða Dívan :$

» 3 hafa sagt sína skoðun

25.03.2008 00:14:48 / harpara

væks vitiði hvað ég fékk.....??



Jábbs ég er að segja ykkur það, ég fékk frá mínum yndislega manni þetta mótorhjól í afmælisgjöf :haha:  Hann er svo yndislegur, hann er búinn að vera að brasa við að láta sprauta hjólið og gera það flott, og kom mér svo á óvart með því á afmælisdagsmorguninn, og það tókst sko hjá honum:d Ég ætlaði að setja inn fleiri myndir af því og af mínum skemmtilega svip sem ég var víst með þegar ég var að skoða hjólið :lol:  Enda vááá ekkert smá klikkað flott afmælisgjöf og ég var líka svo montin að ég var brosandi allan daginn, eins og ég hafi sofið með herðatré í munninum :haha: Takk ástin mín fyrir þessa æðislegu gjöf, mér hefur aldrei verið komið jafn mikið á óvart, elska þig sætastur :d
Dagurinn var hreinlega æðislegur, ég fékk fullt af fólki í kaffi og fullt af fallegum gjöfum. Gunni og Hrafnhildur gáfu mér þessar flottu töskur sem eru á hjólinu.:d Helena mín, Lára mín og Geiri voru heil hljómsveit fyrir mig, sugnu og spiluðu afmælissöginn fyrir mig, bara yndisleg :d og gáfu mér líka kórónu, stórt kort, gjafabréf og körfu fulla af dóti :d, Ég fékk líka gullkistu yngismeyjarinnar frá Önnu Steinunni, Þresti og Stefaníu og í henni var held ég allt sem ung kona þarf, súkkúlaði, engill, kerti og skart :d
Ég fékk gjafabréf í dekur, kertastjaka, páskaegg, mósaíkdisk með skreytingu á og margt, margt fleira og svo má ekki  gleyma að ég er bara nánast strax búin að safna fyrir mótorhjólaprófinu, sem verður tekið strax og vorprófin eru búin.
En jæja ég varð bara að monta mig á því hvað ég er heppin kona. Og eins og ég fékk í korti frá tengdó "Bros er ódýrasta yngingarkremið" , svo brosum öll og verum kát
Þangað til næst
Bæjó brosandi Dívan :haha:

» 8 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 03:50:59 / harpara

Minn á afmæli í dag :)

Halló halló allir :haha:
Já haldiði að það sé ekki bara komið að því, mín á bara afmæli í dag og það meira að segja stórt og allt, 30 ára í dag takk fyrir:haha:
Ég er búin að vera ógó dugleg síðustu daga, búin að vera að baka og þrífa og gera fínt 8) Stefnan er nefnilega skal ég segja ykkur að halda svolítið upp á þennan merka áfanga og vera með svona fjölskyldukaffi í dag, svona fyrir foreldrana, ömmur og afa, tengdó og svoleiðis :haha: Og svo er það nú aldeilis ekki búið skal ég segja ykkur, því í kvöld á svo að vera heljar partý fyrir vini og auðvita fjölskyldumeðlimi líka, svona þá sem ekki þurfa snemma í háttinn og svonna,  nei djók :lol: En allavegana hlakka ég mikið til og ætla sko að skemmta mér rosalega vel í allan dag.
Ég er meira að segja búin að fá 2 afmælisgjafir, ég fékk föt frá honum Baldri mínum og svo fékk ég hænuhjón frá Ragnheiði, Bjarna og Gumma, bara sætt :d
En jæja þetta er orðið alveg yfirdrifið nóg í bili, varð bara að monta mig af því að eiga afmæli, ég meina það skeður nú bara einu sinni ári svo má maður vera montinn :haha:
Þangað til næst
Bæjó afmælis Dívan 8)


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.03.2008 17:19:51 / harpara

Er ekki allt í lagi á þessu landi???

 Tveir dómar sama dag á sama landinu.:!: />

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í eins árs fangelsi,
þar af níu mánuði skilorðsbundna, fyrir hrottafengna árás og nauðgun
gagnvart unnustu sinni. Þá var hann dæmdur til að greiða henni rúmar
*sex hundruð þúsund *krónur í miskabætur.:!: />

Hæstiréttur hefur dæmt Hannes Hólmstein Gissurarson til að
greiða Auði Laxness, ekkju Halldórs Laxness, *eina milljón og fimm*
*hundruð þúsund
* í fébætur fyrir brot á höfundarrétti í fyrsta bindi af
ævisögu Halldórs. Þá er Hannes Hólmsteinn dæmdur til að greiða 1,6
milljónir
í málskostnað :!: />

Hvor konan ætli hafi þjáðst meira, andlega og líkamlega?:!::!:

Já spáum aðeins í það, það er greinilega meiri glæpur að stela einhverju orðum, með fullri virðingu fyrir höfundarréttinum,  en að misþyrma og nauðga fólki......:evil:  ég er ekki að ná upp í nefið á mér með þetta takk fyrir pent....(þessir broskallar sem koma eru ekki frá mér, og ég næ þeim ekki af, þetta er ekki broslegt finnst mér )
en þangað til næst
bæjó Dívan alveg bit á þessu :$
/>

>


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 33925
Klukkan